Sara hætt á hárgreiðslustofunni og orðin fasteignasali!

Jæja góðir hálsar! Blush Þá er betri helmingurinn formlega hætt að rýja og súta á hárgreiðslustofunni Paul Station og er komin í fulla vinnu á fasteignasölunni Perla Investments. Wink Við höfum samt grun um að fjölmargir aðilar sem hún hefur haft hendur í hári í, vilji að þau fari í hár saman aftur. Smile Það er aldrei að vita, ef þið farið vel að henni, hvort hún tekur fram sauðaklippurnar og litaspjaldið og græjar nýjasta tískurúning að hætti sauðkindarinnar okkar? Tek samt fram, til að fyrirbyggja allan misskilning, að væntanlega muni menn og konur ekki fara jarmandi út frá henni þó að orðalagið bendi til þess. Pouty En án þess að nefna nein nöfn þá gæti ég trúað að einn eða tveir muni æfa sig í léttu jarmi í c eða d dúr áður en mætt er á svæðið Whistling

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Didda

..........mmmmeeeeee

Didda, 9.6.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband