6.6.2008 | 23:34
Svakalega er ég feginn að betri helmingurinn sé komin heim aftur!
Eins og fyrisögnin ber með sér voru þetta ekki auðveldir dagar á meðan Sara var á Klakanum. Skæruliðsamtökin (samt ekki ETA en við getum kallað þau KGE + HSE) sáu til þess að undirritaður var gjörsamlega búinn á því á hverju kvöldi! Samt lagði Rósa hjálparhella hönd á plóginn og kom meira að segja einu sinni og eldaði plokkfisk. En til að gæta allrar sanngirni þá geta þessir meintu skæruliðar verið eins og englar annað slagið eins og meðfylgjandi myndir bera með sér!
Athugasemdir
Yndislegar dúllur!!
Kv.Hilla frænka
Hilla (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 10:27
Æji sætu spætur............
Nú er Ljósa alveg að koma og óskar eindregið hér með að fá svona knús
Didda, 9.6.2008 kl. 15:54
yndislegar dúllar, lifandi og sprækar og bestar þegar þær sofa!
www.zordis.com, 18.6.2008 kl. 07:20
Er ekki kominn tími og efni í nýja færslu!
...... hummmmmmm og hux, þó ekki á fjórum hjólum í hlýjum tón.
www.zordis.com, 14.7.2008 kl. 18:04
Góðan og blessaðan daginn, nú er kominn tími á nýtt blogg.......
Alveg satt
Senjórítan (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 15:44
Hold your horses! Nýtt blogg er alveg að koma. Maður ætti líka að hafa tíma til þess að blogga aðeins með tvö au-pair á heimilinu!
Spanjólarnir í Byggðaveginum, 19.7.2008 kl. 09:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.