28.9.2008 | 09:47
Ekki fær maður verðlaun............
..............fyrir ritstörf þessa dagana, svo mikið er víst miðað við dugnaðinn við bloggskriftir! En maður telur sig alltaf vel afsakaðan þegar betri helminginn vantar í einhvern tíma. En í gærkvöldi kom Sara aftur til Spánar eftir heillanga íslandsdvöl, eða það finnst okkur allavegana sem vorum hér heima. En nú duga víst engar afsakanir lengur og vissara fyrir Spanjólana að bretta upp ermar í þessum efnum!
Látum heyra í okkur fljótlega úr rigningunni hér á Spáni!
Athugasemdir
Verðlaun eru fremur afstæð viðurkenning fyrir frammistöðu! Yndislegt að fá kjéddlinguna heim og vonandi nær hún sér fljótt!
www.zordis.com, 28.9.2008 kl. 19:04
Knús knús til spánar, hlakka til að sjá ykkur fljótlega........ vonandi verður hætt að rigna þegar ég kem heim ,,,,, hér er búið að rigna stanslaust síðan ég lenti ferskt og gott en alveg komið nóg.
Rósa (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 22:02
Gaman að sjá að bloggarinn er vaknaður
Sara mín, láttu þér nú batna í mallakút.....
Kveðja frá Íslandi,
Fjóla, Fannar Guðni, Máni Felix og Helga
Fjóla (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 09:10
Ævinlega spanjólar......já það var sko kominn tími til að þú bloggaðir, ekki það að ég sé neitt svakalega að gera mig í þeim málum sjálf
En það var nú gaman að fá hinn helming í heimsókn, enda græjaði hún Ljósu aftur blond var ekkert að lítast á mig með þennan háralit sem ég var með
Neibb enginn verðlaun til þín kallinn minn, en til hamingju með daginn í gær nú ertu búinn að ná mér í nokkra daga
Didda, 2.10.2008 kl. 09:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.