5.8.2009 | 14:33
Afmæli, slysadeild og týnd kisa.
Þá er enn einu skæruliða-afmælinu lokið! Kristinn Gígjar orðinn sex ára og kominn á grunnskólaaldurinn. Móðir hans sá til þess að enn einu sinni var haldin semi-fermingarveisla þannig að enginn veislugestur fór illa haldinn úr Byggðaveginum. Að sjálfsögðu var afmæliskakan skreytt risaeðlum. Reyndar er kappinn með þrjá sauma fyrir ofan vinstri augabrúnina eftir að hafa stangað stofuborðið kvöldið áður. Hann stóð sig gríðarlega vel upp á slysadeild og fékk mikið hrós frá hjúkrunarfólkinu fyrir frammistöðuna. Kannski að hann hafi eitthvað af eiginleikum föður síns í þessum efnum, sem er mikill reynslubolti á þessu sviði. Vonandi samt að drengurinn feti ekki í fótspor föðursins í þessum efnum! Svo rann afmælisdagurinn upp og Raya var búin að vera týnd í tvo daga. En Raya er kettlingurinn sem Hildur Sólveig fékk í afmælisgjöf um daginn. Hún sem sagt bað um lifandi kisu í afmælisgjöf, ekki dóta kisu! Það reyndar gleymdist alveg að minnast á hana í síðasta bloggi og biðjum við Spanjólarnir, hana afsökunar á því. En eftir að hafa skutlað auglýsingu á netið þá var hringt og Raya var fundin.
Svo er rétt að láta vita af því að sólin er byrjuð að skína og hitastigið er að síga upp á við og Spanjólarnir senda knús á liðið!
Athugasemdir
Allt er gott sem endar vel
Didda, 5.8.2009 kl. 14:49
Mig langar í súkkulaðiköku með risaeðlum................
Rósa (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 17:33
Girnileg risaeðluterta!
Til lukku með Kristinn Gígjar og gott að Raya kom heim.
www.zordis.com, 9.8.2009 kl. 09:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.