Skoðanakönnun Spanjólanna.

Spurt er
Hvernig lýst þér að Spanjólarnir séu fluttir á Klakann?
 
Mjög vel, ævinlega velkomin! 0,0%
Sléttsama! 0,0%
Rosalega illa, hundskist aftur til Spánar! 100,0%
3 hafa svarað
 
Þá sláum við botninn í þessa skoðanakönnun en niðurstöður hennar eru afgerandi, 100% þeirra sem þátt tóku er rosalega illa við að við séum flutt á Klakann og vilja að við hundskumst aftur til Spánar! Wink
Þar sem fjárhagsstaða Pinch Spanjólanna leyfir ekki aðra búferlaflutninga á milli landa þá erum við til í að taka við styrkjum til þess arna og er ekkert hámark á styrktarupphæðum og bókhaldið mun verða lokað fjölmiðlum og öðrum forvitnispúkum. Sérstaklega hvetjum við þessa þrjá sem tóku þátt í könnuninni að styrkja okkur myndarlega! Whistling
 
Spanjólarnir óska ykkur öllum gleðilegra páska. Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Að sjálfsögðu á að styrkja ykkur spanjólana hingað til Espania aftur.

Ég bý sjálf á Spáni og vil hvergi annars staðar búa.

Hafið það gott annars.

Kv Brynja spánarbúi.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 12.4.2009 kl. 19:14

2 identicon

Ef ég hefði nú veið vakandi fyrir þessari skoðanakönnun þá hefði niðurstaðan ekki verið svona afgerandi. Maður hefði að sjálfsögðu kosið að þið séuð ævinlega velkomin  og til hamingju með að vera búin að fá íbúð

Kv. Rut

Rut (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 13:33

3 identicon

Ég er að sjálfsögðu sammála síðustu athugasemd

Marta (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 18:40

4 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju með íbúðina elskurnar. Knús í helgina og gangi ykkur vel :-)

www.zordis.com, 15.5.2009 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband